Frístund

Frístundastarf er starfrækt þrjá daga í viku eftir skóla fyrir nemendur í 1.-4.bekk og einu sinni í viku fyrir nemendur í 5.-7.bekk. Í frístund er fjölbreytt starf þar sem leikurinn er hafður í fyrirrúmi í öllu starfi. Dæmi um verkefni frístundar eru spil, perlur, lita/teikna, tölvur, lego, útivera og svo eru íþróttaæfingar í umsjá Mývetnings, íþrótta- og ungmennafélags, í boði alla dagana.