112 dagurinn

Í dag fórum við og heimsóttum Björgunarsveitina Stefán í tilefni af 112 deginum sem haldinn var í gær 11. febrúar.

Þar fengu nemendur að skoða allan þann tækjakost sem að sveitin hefur upp á að bjóða, bílarnir, snjóbíllinn, snjósleðana og sexhjól sveitarinnar. Samhliða þessu var rætt um mikilvægi björgunarsveita og númerið 112.

Þökkum við Björgunarsveitinni Stefáni fyrir að taka vel á móti okkur.