Árgangar 2017 og 2018 eru í danskennslu þessa dagana hjá Önnu danskennara, en hún kemur tvisvar á ári til okkar og er með danskennslu fyrir elstu tvo árgangana í leikskólanum og svo grunnskólann. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með þeim læra ný spor og þau sem hafa verið áður í dansinum eru enga stund að rifja upp eldri spor sem þau hafa lært.
Myndir eru komnar inn á Karellen.