Í dag fengum við Grænfánann afhentann í fyrsta skipti.
Við fengum mikið hrós fyrir það hversu flott verkefni við höfum verið að vinna að og erum mjög stolt af fánanum okkar.
Í tilefni afhendingarinnar kveiktum við eld í nýju bálpönnunni sem foreldrafélagið gaf skólanum og grilluðum sykurpúða.