Skólapeysur

Í dag fengu allir nemendur leik- og grunnskólans afhentar skólapeysur.
Nemendur grunnskólans hönnuðu merkingarnar á peysurnar sem heppnuðust afar vel.
Nemendur voru virkilega ánægðir að fá peysurnar og þær munu eflaust verða vel nýttar í vetur.
Við þökkum Foreldrafélaginu kærlega fyrir.