Í dag var fyrsti dagur skólasunds hjá skólahópnum. Nemendur fóru í samfloti með grunnskólanum og tóku sundtíma með 1. bekk. Í vor fá þau tvo sunddaga sem verður vonandi góður undirbúningur fyrir haustið þegar þau byrja í skólanum. Dagurinn gekk ljómandi vel og nemendur stóðu sig með prýði í skólabíl og sundlauginni.
Myndir eru komnar inn á Karellen.