Nemendaverndarráð

Nemendaverdarráð

Í 40. grein grunnskólalaga 2008 segir m.a. :
„Skólastjóri skal samræma innan hvers skóla störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda er lúta að sérfræðiþjónustu, námsráðgjöf og skólaheilsugæslu með stofnun nemendaverndarráðs. Jafnframt skal stuðla að samráði við félagsþjónustu sveitarfélags og barnaverndaryfirvöld vegna málefna einstakra nemenda eftir því sem þurfa þykir.“
Í nemendaverndarráði starfa, skólastjóri, skólahjúkrunarfræðingur, fulltrúi Félags- og skólaþjónustu og einn kennari skólans. Auk þess sitja einstaka fundi kennarar eða aðrir sem til eru kallaðir eða hafa sjálfir óskað eftir að leggja mál fyrir fundinn. Mikilvægt er að nemendur geti leitað til kennara og annarra starfsmanna skólans með vandamál sín. Lipurt upplýsingastreymi og samræmi í aðgerðum getur skipt sköpum um líðan nemenda.

Nemendaverndarráð 2023-2024

Anna Sigríður Sveinbjörnsdóttir skólastjóri
Ingibjörg Stefánsdóttir skólahjúkrunarfræðingur
Ingibjörg Sigurjónsdóttir sálfræðingur skólaþjónustu
Ólöf Þuríður Gunnarsdóttir fulltrúi kennara.
Fundir verða þá daga þegar skólaþjónustan er í skólanum u.þ.b. einu sinni í mánuði.

Tilvísun til nemendaverndarráðs Reykjahlíðarskóla