Hin árlega árshátíð verður haldin með pompi og prakt næstkomandi fimmtudag, 30. nóvember.
Dagskráin hefst kl. 18:00, miðaverð er 1500 kr. en frítt er fyrir nemendur leik-og grunnskóla sveitarfélagsins.
Boðið verður upp á kaffi og smákökur í hléinu.
Allar deildir koma á svið eins og venjan hefur verið en unglingadeildin ætlar að setja upp hið stórskemmtilega leikrit "Gilitrutt" eftir Leikhópinn Lottu.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.