Í gær fóru nemendur 8. – 10. bekkjar á leiksýninguna Góðan daginn, faggi á Húsavík. Sýningin er sjálfsævisögulegur heimildasöngleikur þar sem fertugur hommi leitar skýringa á skyndilegu taugaáfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasamann leiðangur um innra líf sitt og fortíð og samtíma rekst hann á rætinn hommahatara á óvæntum stað. Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra.
Eftir sýninguna tóku nemendur þátt í umræðum með aðstandendum sýningarinnar.