Göngum í skólann

Megin markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla
og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning
reglulegrar hreyfingar og að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum.
Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum
og það hversu “gönguvænt” umhverfið er.