Útivera með leikskóla

Miðvikudaginn 11. maí voru heilsueflandi og grænfána nefndin búin að skipuleggja útveru með öllum nemendum skólans og eldri krökkum leikskólans. Eftir hádegismat fóru allir saman út og var skipt upp í hópa þvert á aldur. Hver hópur þurfti að leysa tíu mismunandi þrautir og reyndu sumar þeirra á að eldri nemendur aðstoðuðu þá yngri.

Þrautirnar voru:

  • Húlla
  • Sippa
  • Hitta í körfu
  • Hoppa parís
  • Klifra yfir í klifurgrindinni
  • Fara þrautabrautina í kringum rólurnar
  • Allir renna sér þrisvar sinnum í rennibrautinni
  • Kríta mynd af hópnum
  • Syngja lag og hoppa á meðan
  • Mynda ákveðin dýr, saman eða hvert og eitt

Þegar allir höfðu klárað þrautirnar fórum við á sparkvöllinn og fengum dýrindis muffins og svala og nutum þess í blíðunni.

Við þökkum leikskólakrökkunum kærlega fyrir komuna.